
Í dag er stór dagur hjá okkur. Eftir hellings vinnu við hönnun, forritun og prófanir erum við stoltir að kynna Serva til leiks.
Hvers vegna Serva?
Hugmyndin kviknaði út frá einfaldri þörf: Að gera líf veitingamanna auðveldara. Við sáum hversu flókið og dýrt það getur verið að halda utan um matseðla, vefsíður og prentun á mörgum stöðum í einu. Við vildum búa til kerfi á íslensku sem leysir þessi vandamál á einfaldan hátt.
Við erum bara rétt að byrja. Serva er verkefni sem við brennum fyrir og við erum með fullt af spennandi nýjungum á teikniborðinu sem við getum ekki beðið eftir að sýna ykkur.
Takk fyrir að fylgjast með – við hlökkum til að sjá hvernig þið notið kerfið!
- Kristófer Arnþórsson & Arnar Björn Pálsson, stofnendur Serva.
